Allt annað líf

Jæja, að loknum kosningum, hvað gerir frambjóðandi þriðja sætisins þá?
Jú hann snýr sér aftur að hinu daglega amstri i bili - að sínu fasta starfi í hugbúnaðarbransanum, að því að vera með fjölskyldunni meira, undirbúa sumarfrí, og svoleiðis.

Stjórnarmyndunarsamtöl B og D standa yfir. Þær eru greinilega vandkvæðum bundnar, fyrst þeim er ekki lokið.

Ég er sammála fulllyrðingum Ögmundar um stjórnarmynstur, um valkostina sem eru í boði (sjá: http://www.ogmundur.is/news.asp?id=657&news_ID=3287&type=one).

Ég get líka sagt við þá sem vilja alls ekki þessa stjórnina eða hina, til hægri eða vinstri, samstarf við þennan eða hinn: það er mikilvægast að gera gagn. Þá á ég ekki við flokkana sem viðkomandi er í heldur samfélagið allt, þjóðina.

Ég bauð mig fram í þriðja sæti V listans til þess að gera þjóðinni gagn.

Til þess eru stjórnmálamenn.

0 athugasemdir: