Hvalveiðarnar líka - skyldleiki við framsóknarmenn

Jú, það passaði til. Hvalveiðar eru ásteitingsefni þessarar ríkisstjórnar. Þó greinilega ekki meira en svo að til dæmis hér í Hafnarfirði sá fulltrúi Sjálfstæðisflokksins í umhverfisnefnd sérstaka ástæðu til þess að fagna því að hvalveiðar væru hafnar á ný. Tveir fulltrúar Samfylkingarinnar sáu enga sérstaka ástæðu til þess að bóka sérstaklega í því máli. Ekki þá.

----------------------
Hér upphefst nýr þáttur um skyldleika undirritaðs og nokkurra íslenskra þingflokka. Byrjað á framsóknarflokknum.

Ég er jafnskyldur öllum þingmönnum framsóknar í NA-kjördæmi. Sameiginlegur ái okkar Valgerðar er Jón Einarsson bóndi í Reykjahlíð í Mývatnssveit. Hins vegar eru forfeður mínir og piltanna með Valgerði, Birkis og Höskuldar, þau Sigurður "blindi" Sigurðsson og Guðrún Jónsdóttir.

Sigurður var niðursetningur mestan part af lífí sínu. Velferðarkerfið var þá ekki upp á marga fiska.

Bjarni Harðarson er hins vegar minnst skyldur mér af þingmönnum framsóknar. Halldór Eirísson prestur og skáld á Kolfreyjustað í Fáskrúðsfirði og á Hjaltastað í útmannsveit, en þar átti hann einnig prestfrúna Þorbjörgu Hallgrímsdóttur.

Við Bjarni erum lítið skyldir.

0 athugasemdir: