Stjórn Suðvesturhornsins

Það er margt sem bendir til þess að stjórn Samfylkingarinnar og Sjálfstæðisflokksins verði stjórn suðvestursins, síður stjórn landsbyggðarinnar.

Það er brýnt fyrir náttúru landsins að umhverfisstefnan Fagra ísland fái að njóta sín, ekki álstefna Gunnars Svavarssonar, Smára Geirssonar og Kristjáns Möllers. Hverjir innan þingflokks Samfylkingarinnar tala fyrir því?

Það er líka nauðsynlegt fyrir íslenskan landbúnað að sú aðför að bændum sem var boðuð af Samfylkingunni á Suðvesturhorninu verði undir landbúnaðarstefnu þeirra á landsbyggðinni. Hverjir innan þingflokks Samfylkingarinnar tala fyrir því?

Einu getur þessi samstjórn illa varist svona, ef hún verður til. Það er frekari einkavæðingu innan almannaþjónustunnar. Þar er styttra á milli framsóknar og vinstri grænna.

En það er ekki víst að þessi stjórn verði til - þótt það sé líklegt.

Munum samt að áhyggjur af því hvar þurfi að gefa eftir eru minni - ef við myndum vinstri stjórn.

Og munum líka, kæru Samfylkingarfemínistar, að þannig gæti Ingibjörg Sólrún jú orðið fyrsti forsætisráðherra Íslands sem er kona.

0 athugasemdir: