Stjórnarsáttmálinn

Það verður spennandi að sjá hvernig stjórnarsáttmálinn verður, hvað verður sett á oddinn.

Vonandi verður tekið á málum vestfirðinga. Þar hefur verið fækkun starfa undanfarið og endar með ósköpum ef fer sem horfir. Það skiptir máli að fólk týni sér ekki í hagræðingarmælikvörðunum og sleppi kjálkanum alveg.

Ég ætla að spá því fyrirfram að gjaldtaka í heilbrigðiskerfinu muni aukast nokkuð á næstunni. Við munum sjá skýrari merki um tvöfalt heilbrigðiskerfi.

Bilið milli þeirra ríku og þeirra fátækara mun áfram aukast. Á sama tíma verður velferðarnetið bætt með ölmusum, í stað þess að það verði fyrir alla í samfélaginu.

Það er mikilvægt fyrir Samfylkingu að taka skrefið eins langt til vinstri og hugsast getur, því með tímanum tosast hún til hægri. Sjálfstæðiflokkurinn þarf að sama skapi að koma sér fyrir til hægri, því þeir tosast til vinstri með tímanum.

Frjálshyggjan verður sterk í þessari stjórn og skilar ávinningi til skamms tíma. Þessi ríkisstjórn verður trúlega nokkuð áþekk þeirri fyrri að mörgu leyti. Frelsi markaðarins verður aukið en frekar og frelsi einstaklingsins mun láta undan.

-----------------------------------
Við verðum að spyrja okkur um þessa nýju stjórn:
Velferð með hvaða formerkjum?
Umhverfisvernd, með hvaða formerkjum?
Kvenfrelsi, með hvaða formerkjum?

Utanríkismál? Her? Írak?
Þensla? Óðaverðbólga?

En spyrjum að leikslokum - allir skulu njóta efans.

0 athugasemdir: