Eins og Michael Jackson sé kominn!
Um helgina var farið í mikla frægðarför til nokkurra merkisbæja á Ströndum þar sem fremst skal Litla-Fjarðarhorn nefnt, gist á Kirkjubóli, heimsóttir fleiri merkisstaðir og söfn en fremst þar er sennilega Sauðfjársetrið (http://www.strandir.is/saudfjarsetur/).
Þar hittum við fyrir Arnar S. Jónsson frá Steinadal framkvæmdastjóra og auðvitað svo miklu miklu fleiri. Hann hins vegar lét þessi frábæru orð falla hér í fyrirsögninni þegar hann ræddi um heimsókn okkar í safnið.
Því þannig var að okkur var tekið, þar sem við komum til heimafólks, eins og þjóðhöfðingi væri á ferð. Enda var það svo.
Þjóðhöfðinginn var jú nefnilega höfuðsnillingurinn Benedikt K. Franklínsson frá Litla-Fjarðarhorni, sem sést á myndinni hér að ofan ásamt eiginkonu sinni Regínu Guðmundsdóttur frá Flatey.
Þau eru þjóðhöfðingjar bæði tvö, í þeim ættbálki sem ég er hluti af ásamt svo miklu fleirum.
Ef ég kynni að semja um þau gott kvæði, þá gerði ég það. En í stað þess þá lýt ég höfði. Og þakka.

0 athugasemdir:
Sendu inn athugasemd