Er breytingin núna?

Það má velta því fyrir sér hvað hefur áunnist í kvenfrelsisbaráttunni. Ef við veljum tímabilið frá því að tímamótaplatan Áfram stelpur kom út, og svo 19. júní 2007, þá hefur auðvitað töluvert áunnist. Um leið er gríðarlega mikið eftir.

Það má alveg nefna ýmsar vörður, sem eru mismerkilegar og ræður þar bæði smekkur og fleira. Forseti Íslands varð Vigdís Finnbogadóttir, Femínistafélagið varð til, Kvennalistinn o.fl. o.fl.

Sumstaðar má greina afturför, svo sem í ráðherraskipan Geirs Haarde, hann veitir forsæti ríkisstjórn sem var sett saman 2007 sem hefur aðeins þriðung ráðherra sem eru konur.

Mér sjálfum finnst meginframförin felast i því að það er eðlilegt í dag fyrir unga karlmenn að finnast að kynin eigi að hafa sömu stöðu og sama rétt, hitt sé óeðlilegt ástand. Það er líka sýn fleiri og fleiri ungra karla, að líta ekki á þetta ójafnvægi sem sérstakt baráttumál kvenna, heldur sem samfélagsmein.

Liltu verður vöggur feginn, hugsa margir núna. Jú, en munum samt að sértækar aðgerðir sem taka á einkenunum eru til skamms tíma - en hluti af jarðvegsbreytingum er til dæmis þegar fólk horfir öðruvísi á hlutina - og sér þá í nýju ljósi.

0 athugasemdir: