Samfylkingin sleit Reykjavíkurlistanum
Fyrir mína parta er það langþráð viðtalið við Svandísi Svavarsdóttur í Morgunblaðinu í dag, málið svo sem mér í skylt í mörgum skilningi þess. Það er löngu tímabært að þessi saga verði sögð - eftirspurnin er næg og nóg um frásagnir þar sem réttu máli er hallað, ekki síst af ráðherra iðnaðarmála.
Var annars í grímsnesinu í góðu yfirlæti með tengdafjölskyldu. Spil, humar á Stokkseyri, heilsað upp á Urriðafoss og fleira.
1 athugasemdir:
En það fæst aldrei almennilega úr því skorið hver var Náttfari....
Sendu inn athugasemd