Hvernig hagar systurflokkur VG í Noregi sér?




Í norska blaðinu Aftenposten er viðtal við Kristínu Halvorsen (http://www.aftenposten.no/nyheter/iriks/politikk/article1863568.ece), formann SV, systurflokks VG. Þar ræðir hún framtíðina og veruna í ríkisstjórn, en Kristín er fjármálaráðherra.

Það er merkilegt að heyra hvernig fjármálaráðuneytinu er beitt í þágu umhverfismála. Kristín leggur áherslu á þrjá þætti í komandi framtíð:

- losun mengandi þátta. Í Noregi eru það samgöngur sem losa mest. Mengun frá bílaumferð og flugumferð skal fara lækkandi.

- langtímamarkmið snúast um að breyta hegðun Norðmanna og fá þá til þess að nota annars konar eldsneyti með lægra CO2.

Til þess að ná þessum markmiðum eru lögð frekari gjöld á vegi og vegtolla og aukin áhersla lögð á almenningssamgöngur í bæjunum, með auknum beinum fjárframlögum. Síðan verður haldið áfram við endurbætur á járnbrautinni, uppbyggingaráformum er flýtt og aukin kraftur verður lagður í heildarsamgöngur á stóroslóarsvæðinu.

Þriðja markmiðið er:
- beita gjöldum til þess að breyta hegðun fólks

Lækka gjöld á þau ökutæki sem nota umhverfisvænna eldsneyti og auka útgjöld á önnur. Í heildina verður um jafnar tekjur að ræða, þannig að tekurnar eru færðar á þá sem menga meira. Einnig hefur ríkisstjórnin það markmið að taka sjálf upp umhverfisvænni bílaflota.

Já, þannig er hægt að stýra umhverfismálum úr fjármálaráðuneyti

0 athugasemdir: