Harry Potter stelpa?
Stórgóð vinkona mín Sóley Tómasdóttir skrifar stutta hugleiðingu um Harry Potter. Að vanda er brugðið upp kynjagleraugunum við skoðunina. Sóley skrifar:
Að Harry Potter loknum
Þá er ég búin með Harry. Dálítið skrýtið að eiga ekkert eftir þar. Skemmtilegar bækur sem hafa gefið lífinu lit með reglulegu millibili undanfarin ár. Segi svo sem ekki að endalokin hafi komið mikið á óvart en engu að síður gott að vita hver þau eru.Eitt sem ég velti fyrir mér. Ætli það hafi verið meðvituð ákvörðun hjá J.K. Rowling að hafa Harry Potter strák, eða ætli hann hafi verið strákur þegar hugmyndin fæddist? -Það er athyglisvert að spá svolítið í hvoru fyrir sig.
Hafi Rowling þurft að gera upp við sig hvort bækurnar ættu að fjalla um galdrastelpu eða galdrastrák var það eflaust klókt að velja strákinn. Þó ég geti ekki fullyrt um það, er óneitanlega líklegra að karlkyns hetja selji betur en venkyns. Þó tel ég líklegra að Harry hafi fæðst sem strákur í hausnum á Rowling.
Samfélagið hefur kennt okkur að hetjur eru karlkyns og því er erfitt - jafnvel fyrir jafnsnjallar konur og Rowling - að láta sér detta kvenkynsofurhetjur í hug.
"Samfélagið hefur kennt okkur að hetjur séu karlkyns. . ."
Jú örugglega að einhverju leyti. Það sem er samt merkilegt við Harry Potter hetjurnar er það að söguhetjurnar eru svolítið langt frá staðalímyndunum. Harry er með gleraugu, Hermione er gáfuð og klár, Ron er rauðhærður. . .
Eru þetta ekki allt hetjur sem eru langt frá því að vera staðlaðar?
Og þegar allt kemur til alls, galdranornir eru staðlaðri en galdradrengir. Þess vegna væri það algerlaga úr fasa að hafa titilsöguhetjuna sem stelpu. Því það hefði jú verið dæmigert.
2 athugasemdir:
Í ævintýrabókum Philips Pullmans, His Dark Materials (sem Rowling sækir ekki lítið til), er hetjan kvenkyns, 11 ára gömul stelpa. En Pullman er líka miklu betri höfundur en Rowling. Kemur í bíó um jólin!
Ég er ekki sammála þessu, finnst þau smellpassa inn í staðalmyndirnar, sér í lagi Harry og Hermoine.
Harry hefur meðfædda hæfileika sem hann þarf ekki að hafa fyrir - í fullu samræmi við meinta meðfædda hæfileika ómenntaðra fjölmiðlastjarna og viðskiptastórlaxa.
Hermoine er aftur á móti klár af því hún er dugleg og samviskusöm og er stöðugt að "nöldra" í strákunum yfir kæruleysi þeirra. Skilur ekki að þeir þurfa ekki að hafa eins mikið fyrir hlutunum og þeir...
Ron, sem er þó áhrifaminni persóna en hin tvö býr einnig yfir hæfileikum sem hann vissi ekki um, sér í lagi þegar líða tekur á söguna.
Sendu inn athugasemd