Söguleg pólitísk tíðindi

Í dag urðu pólitísk tíðindi.

Félagslegur meirihluti var myndaður í Reykjavíkurborg. Það eru auðvitað pólitísk tíðindi og söguleg, en það hefur gerst áður.

Það sögulega felst í því að hægri meirihluti við stjórn borgarinnar fellur. Við tekur félagslegur meirihluti.

Umskiptin voru leidd af Svandísi Svavarsdóttur oddvita vinstri grænna í borgastjórn.

Ég vil óska okkur Vinstri grænum til hamingju með þátttöku í nýjum meirihluta.
Ég óska okkur öllum líka til hamingju með Svandísi sérstaklega.

Hún er nefnilega frábær!


0 athugasemdir: