Hvað er sameining vinstri manna?

Reglulega er rætt við mig um hvort ekki væri nú betra ef vinstri menn væru saman í hreyfingu, saman í flokki. Ég man nú ekki hvort ég haf skrifað eitthvert smáræði um það áður, en látum það vera.

Þeir sem vilja einn stóran flokk vinstra megin við miðju eru ýmsir:
- Þeir sem hafa reynslu af því að reyna að keyra saman samfylkinguna, og líta ekki á það sem svo að það hafi mistekist á sínum tíma.
- Þeim sem finnst flottara að hafa bara hægri og vinstri (kannski Krónuna og Bónus o.s.frv.)
- Þeir sem eru á ímynduðum jaðri Samfylkingar, Framsóknar og VG og vildu stundum miklu frekar vinna með alvöru félagshyggjufólki í öllum þessum flokkum, en þola illa það sem þeir kalla bitlingasugur í framsókn, kverúlanta í VG og krata í samfó.
- Þeim sem fannst svo gaman að vera í Röskvu í Háskólanum, að það sé miklu betra að vera saman og vera á móti Vöku, því þeir séu í hinu liðinu.

Ég lít svo á að sameining ólíkra flokka geti ekki verið ákveðið, án þess að fyrir því sé frjór jarðvegur, farsæl skilyrði. Það skapar engin einn slík skilyrði.

Þess vegna hef ég ekki sérstakar áhyggjur af því að einhverjum finnst þetta spennandi og þyki miður að þetta sé ekki svona í dag.

Ég ætla að láta gott af mér leiða þar sem ég get, í flokki þar sem ég kann við mig - á meðan ég nenni. Ef allt fólk sammælist um þetta - þá er í góðu lagi að það sé hvert í sínum flokki, eða hvað?

0 athugasemdir: