Konur sem segja nei. . .

Mig langar að nota tækifærið, þótt ég bloggi heldur lítið núna í seinni tíð, til þess að benda á góða grein Drífu Snædæl í fréttablaðinu í dag. Drífa er að halda áfram að ræða um frétt sem kom í 24 stundum um daginn þar sem fram kom að feministar hefðu neitað að koma í Silfur Egils.

Í athugasemdum á hinum og þessum bloggsíðum, nánast öllum í umsjá góðkunningja Sóleyjar Tómasdóttur, sem fletta má finna í athugasemdadálkum við hennar blogg, eru athugasemdirnar þessar helstar:

Konurnar voru bara þrjár, blaðamaðurinn er í VG og fréttin þess vegna ekki frétt og Sóley ætlar aldrei að hætta þessari vitleysu (þessi seinasta er nú bara huglæg samantekt á afgangnum af innihaldinu, biðst fyrirfram afsökunar á ónákvæminni).

Davíð Oddsson, sá sami og allir telja hafa fundið upp smjörklípuaðferðina, þrátt fyrir að hann hafi kannski fyrst og fremst skilgreint hana, kemur þessu máli ekkert við. Hins vegar er þetta bara dæmi um smjörklípubeitingu há fyrrnefndum góðkunningjum að ræða ekki lengur kjarna málsins, heldur skjóta bara eitthvað út í loftið, í von um að hávaðinn yfirgnæfi umræðuna. Skotum um hver blaðamaðurinn sé og þetta sé nú meira bullið.

Ég heyrði athugasemdir Egils Helgasonar í morgunútvarpi rásar tvö í gær eða fyrradag við þessa frétt. Áferð og yfirbragð þeirra ummæla voru önnur en í frétt á mbl.is. Mér þótti vænt um yfirlýsingu Egils um að hann væri ekki bara trédrumbur, hann tæki auðvitað mark á umræðunni í þjóðfélaginu.

Ég skil ósköp vel að margir femínistar hafi ekki viljað koma í þáttinn til Egils. Egill beitir ekki femínískum efnistökum og er frekar þekktari fyrir að vera jafnvel á öndverðum meiði. En ég stend líka á því að batnandi mönnum sé best að lifa, og ég held að Egill sé í hópi þeirra.

ps:
Hitt er rétt að mikil umræða hefur verið um það að Egill Helgason sé ekki kynhlutlaus þáttur. Sú umræða hefur farið fram meðal femínista. Viðbrögð margra þeirra er að sniðganga þáttinn. Í ljósi þessa er fyrrnefnd frétt í 24 stundum "frétt".

0 athugasemdir: