Barnasáttmáli S.Þ. í Hafnarfirði og VG
Síðari umræða fjárhagsáætlunar í Hafnarfirði var í vikunni. Okkar frábæri bæjarfulltrúi VG lagði fram nokkrar tillögur, þar á meðal eina sem mér finnst frábær:
Kynning á barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna
Bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkir að fela bæjarlögmanni að vinna að kynningu á barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna sem hægt verði að nota í grunnskólum bæjarins frá og með hausti 2008.
Samkvæmt samningnum ber aðildarríkjunum að kynna efni hans með virkum hætti jafnt fyrir börnum sem fullorðnum. Það er því kjörið að Hafnarfjörður sýni gott fordæmi og hefði kynningu á sáttmálanum fyrir börnum sveitarfélagsins.
Um fundinn má sjá hér: http://www.hafnarfjordur.is/hafnarfjordur/fundargerd_nanar/?ec_item_9_id=86d060ab-be8b-4ca4-a465-1cefb418d48b
0 athugasemdir:
Sendu inn athugasemd