Einkaframtakið skilar ekki betri rekstri!
Því hefur lengi verið haldið fram af fylgjendum frjálshyggjunnar að ein af rökunum fyrir að einkavæða opinber fyrirtæki séu þau að maður fari einfaldlega betra með það sem maður á sjálfur en það sem allir eiga. Þessu hafa Vinstri græn mótmælt, ásamt sumum úr Samfylkingu og sumum úr Framsókn.
Samkvæmt fréttum 24 stunda í dag eru nú í dag í Háskóla Íslands kynntar niðurstöður rannsóknar Þrastar Ólafs Sigurðssonar lektors, sem blása þessi rök út af borðinu. Samkvæmt þeim er engin fylgni milli einkavæðingarinnar og betri rekstrar, því einungis bankarnir hafa skilað betri rekstrarafkomu, en hin "gömlu" opinberu fyrirtækin ekki.
Þetta eru merkilegar niðurstöður. Í fyrsta lagi styrkja þær boðskap okkar sem höfum haft efasemdir um einkavæðingu opinberra fyrirtækja, því þessi rök frjálshyggjumanna vógu þungt, því að sjálfsögðu á að fara vel með fé. Ég held að þessar niðurstöður ýti enn frekari stoðum undir þá kröfu þingflokks Vinstri hreyfingarinnar um að nauðsynlegt sé að fara ofan í kjölinn á meintum ávinningi af einkavæðingu opinberra fyrirtækja undanfarinna ára. Fyrr enn síðar.
0 athugasemdir:
Sendu inn athugasemd