Nú er komið kvöld og lokin á löngum degi, sem endaði á herrakvöldi hjá FH. Þar var ég framan af, heyrði ræður framsögumanna sem voru ræðumenn frá stjórnmálaflokkunum.
Það var tekið vel á móti okkur og við þökkum auðvitað fyrir okkur.
Mér fannst vinir mínir í FH ekki vera allir jafn kurteisir við alla frambjóðendur sem þeir höfðu boðið til sín. Ekki þurftum við Ögmundur að kvarta, okkur var vel og kurteislega tekið. Sama má ekki segja um viðtökur gagnvart Samúel Erni sem kom frá framsóknarflokknum, en á hann var baulað þegar hann gekk af sviðinu. Sama var reyndar upp á teningnum þegar Jakob Frímann tók upp á þeim sérkennilegheitum að óska eftir því að fyrir hann væri sunginn afmælissöngurinn.
Kannski hef ég ekki áttað mig á því hvaðan í salnum baulið kom, kannski var þetta hreinlega einhver hluti gesta sem ekki tilheyra félaginu.
Frjálslyndi flokkurinn hefur trúlega ekki séð sér fært að mæta, en annars var þarna ágæt dekkun.
Gunnar Svavarsson sagði undir sinni ræðu að hann byggist við því að kjósendur rötuðu allir "heim á sinn bás". Þetta þótti mér ekki lýsa mikill bjartsýni á það að okkur takist að fella ríkisstjórnina eftir viku. Eins er það svo að atkvæði eru ekki bundin á bás. Engin á þau,nema kjósendur, hver og einn eitt atkvæði.
Bjarni Benediktsson var með nokkuð undirbúna ræðu sem var sæmilega undirbúin en kannski ekki nægilega vel æfð.
Ég vil þakka fyrir mig, á fyrsta herrakvöldi íþróttafélags sem ég hef farið á. FH-ingar tóku á móti okkur með sóma - eins og þeim ber.