Hvað er ráðherraábyrgð?

Á RÚV var haft eftir Sturlu Böðvarssyni að hans aðkoma að málinu hefði ekki leitt til þess umframkostnaðar sem nú væri til rannsóknar. Þess vegna sé fráleitt að hann segi af sér.

Ber hann þá ekki ábyrgð á málinu? Bera ráðherrar eingöngu ábyrgð á málum sem eru í beinu orsakasamhengi við aðgerðir þeirra? Er til dæmis engin ábyrgð borin sitji ráðherrar hjá og hlutirnir verða án aðkomu ráðherra - bera þeir ekki ábyrgð?

Ef Þjórsá verður virkjuð, og umhverfisráðherra kysi að gera ekkert, ber hún þá enga ábyrgð, því ekkert sem hún gerði var til þess að virkjunin varð að raunveruleika.

Þetta vekur upp stef sem má til dæmis sjá á heimasíðu Katrínar Jakobsdóttur um óvirka umhverfisstefnu (http://www.katrinjakobsdottir.is/wordpress/?p=112).

Þannig má spyrja sig, bera ráðherrar bara ábyrgð á því sem þeir gera sjálfir, en alls ekki því sem ekki er gert eða það sem aðrir gera?

Indland opnar sendiráð á Íslandi


Indland hefur fyrirætlanir um að starfrækja sendiráð á Íslandi á þessu fjárhagsári. Forsætisráðherra Indlands segr megintilganginn m.a. vera að gæta að pólitískum og efnahagslegum hagsmunum Indlands. Þetta segir netblaðið "The Hindu". Þetta þýðir að sendiráðið í Noregi mun ekki lengur sinna þessu hlutverki.


Íslenska sendiráðið á Indlandi hóf starfsemina í lok febrúar árið 2006. Nú sér grilla í Indverskt sendiráð hér á landi, og er það vel.


Það er ekki óalgengt stef hjá fólki að andmæla sendiráðum Íslendinga vegna þess að það sé fáránlegt að setja fé í erlend sendiráð á meðan ekki sé hægt að sinna verkefnum heima fyrir.


Ég er ósammála þessum röksemdum. Við skulum muna að flest stöðugildi utanríkisþjónustunnar eru hér á Íslandi. Um utanríkisþjónustuna gildir, eins og annan rekstur, að það er nauðsynlegt að gæta að hagkvæmni í rekstri. Þess vegna væri nær að benda á slíka meinbugi, en býsnast ekki yfir stofnunum okkar sem eiga að gæta að hagsmunum Íslendinga víðs vegar um heiminn.
(Myndin er frá sendráði okkar Íslendinga á Indlandi og er tekin af heimasíðu Utanríkisráðuneytisins.)

Formaður fjárlaganefndar enn að snapa fæting


Flestir muna hvernig Gunnar Svavarsson og Árni Mathiesen voru að ybba sig hvor við annan á dögunum þegar þeir lýstu yfir andstæðum skoðunum um hvort sveitarfélög skyldu njóta hluta fjármagnstekjuskatts.

Nú er Gunnar kominn á kreik að nýju að sparka í Sjálfstæðisflokkinn. Nú hefur samkeppniseftirlitið nefnt rannsókn, kaupi Reykjavíkurborg hlut Hafnarfjarðar í Hitaveitu Suðurnesja. Í Blaðinu í dag er haft eftir Gunnari fírugum að enginn fyrirvari sé um álit samkeppnisstofnunar í samkomulaginu milli Hafnarfjarðar og Reykjavíkur, þess vegna verði Reykjavík bara að selja einhverjum öðrum sinn hlut á sama gengi, Hafnarfjörður muni að sjálfsögðu selja og Reykjavík kaupa, enda er um það samkomulag.

Þarna er Gunnar að gera margt:


  1. Sparka í íhaldið

  2. Gefa í skyn: "Ég plataði Reykjavík"

  3. Minna á: "Prinsippið um orkufyrirtæki í almannaeigu er ekki mitt, og það kemur mér ekki við."
Ekkert af þessu kemur mér á óvart miðað við kynni mín af Gunnari. Þetta er í fullu samræmi við hvernig hann metur hlutina.
(myndin er tekin af heimasíðu Gunnars:www.gunnarsavarsson.is)

Lettneskur, danskur og bandarískur her á Íslandi


Í vikunni koma hingað hermenn frá Danmörku, Lettlandi og Bandaríkjunum. Þeir segjast vera að æfa sig í að verja landið. F-16 herþoturnar norsku koma á sama tíma.

Hvað eru útgjöld Íslendinga til hermála há? Hafa þau verið rædd á Alþingi?

Harry Potter stelpa?

Stórgóð vinkona mín Sóley Tómasdóttir skrifar stutta hugleiðingu um Harry Potter. Að vanda er brugðið upp kynjagleraugunum við skoðunina. Sóley skrifar:

Að Harry Potter loknum

Þá er ég búin með Harry. Dálítið skrýtið að eiga ekkert eftir þar. Skemmtilegar bækur sem hafa gefið lífinu lit með reglulegu millibili undanfarin ár. Segi svo sem ekki að endalokin hafi komið mikið á óvart en engu að síður gott að vita hver þau eru.
Eitt sem ég velti fyrir mér. Ætli það hafi verið meðvituð ákvörðun hjá J.K. Rowling að hafa Harry Potter strák, eða ætli hann hafi verið strákur þegar hugmyndin fæddist? -Það er athyglisvert að spá svolítið í hvoru fyrir sig.

Hafi Rowling þurft að gera upp við sig hvort bækurnar ættu að fjalla um galdrastelpu eða galdrastrák var það eflaust klókt að velja strákinn. Þó ég geti ekki fullyrt um það, er óneitanlega líklegra að karlkyns hetja selji betur en venkyns. Þó tel ég líklegra að Harry hafi fæðst sem strákur í hausnum á Rowling.

Samfélagið hefur kennt okkur að hetjur eru karlkyns og því er erfitt - jafnvel fyrir jafnsnjallar konur og Rowling - að láta sér detta kvenkynsofurhetjur í hug.


"Samfélagið hefur kennt okkur að hetjur séu karlkyns. . ."
Jú örugglega að einhverju leyti. Það sem er samt merkilegt við Harry Potter hetjurnar er það að söguhetjurnar eru svolítið langt frá staðalímyndunum. Harry er með gleraugu, Hermione er gáfuð og klár, Ron er rauðhærður. . .

Eru þetta ekki allt hetjur sem eru langt frá því að vera staðlaðar?

Og þegar allt kemur til alls, galdranornir eru staðlaðri en galdradrengir. Þess vegna væri það algerlaga úr fasa að hafa titilsöguhetjuna sem stelpu. Því það hefði jú verið dæmigert.

Ágreiningur fjármálaráðherra og formanns fjárlaganefndar

Er þetta ekki rangt hjá Grími Atlasyni bæjarstjóra í Bolungarvík um skilningsleysi fjármálaráðherra á aðstæðum sveitarfélaganna: http://www.bb.is/Pages/26?NewsID=103951. Við skulum muna að stjórnarsáttmáli hægristjórnarinnar kveður á um að ". . .Tekju- og verkaskipting ríkis og sveitarfélaga verði endurskoðuð með það að markmiði að efla sveitarstjórnarstigið".

Hljóta ekki að vera einhverjar aðrar tekjur sem fjármálaráðherrann hefur í huga? Varla eru stjórnarsáttmálinn bara orð á blaði!?

En hvernig mun fjárlagagerðin annars ganga þegar sundrungin er þessi milli ráðherra og formanns fjárlaganefndar?

Egill Helgason í vindbelgsstuði

Össur Skarphéðinsson og Egill Helgason eiga sumt sameiginlegt. Þeir eru t.d. hvorugir sérlega grannir og þykir fátt jafn skemmtilegt og að hlusta á sig sjálfan og eigin kenningar.

Enn einu sinn sést hversu náið nefið er eyrunum, því einn af pistlum Egils Helgasonar í dag er slándi líkur pistli Össurar frá fimmtudeginum 21. júní. Báðir eiga þeir alveg greinilega greiðan aðgang að húgsun og hjarta hins almenna flokksmanns í VG: http://ossur.hexia.net/roller/page/ossur/Weblog/svandis_og_steingrimur.

Ég hef eina spurningu og má spyrja sig hvert eftirtalinna svara séu rétt:

a) Ætli sjálfið sé eitt og hið sama?
b) Er hvor heimild hins um strauma og stefnur Vinstri grænna?
c) Allt ofantalið?