Sinnep
Nú í kvöld er sinnepskvöld.
Fyrir nokkrum mánuðum fórum við hjónakorn til Parísar, og römbuðum inn í sinnepsbúð (þetta er gaman að skrifa svona, búandi í Hafnarfirði). Þar keytum við ásamt öðru, tvær dósir dijon-sinneps. Önnur var með trufflusveppa íblöndun, hin banana.
Já, banana.
Báðar voru afar góðar.
Nokkru síðar komu bróðir minn og mágkona frá sama stað - og færðu okkur mikið úrval sinnpestegunda. Þau koma síðan í kveld og setjast að sinnepssnæðingi.
Nú í kvöld er sinnepskvöld.
3 athugasemdir:
Keyta?
Sinnpes?
Trufflu sveppa íblöndun?
Og þú Kallar þig launbjartann ýslenskufræðing?
Gleði sumars!
Já. . .
Kaupa kaup kupum kopið, ég hefi keytað
Eins er undarlegt hversu hvetjandi áhrif sinnpes hefur á stafkrókabrengl.
pant vera boðin á næsta sinnepskvöld, hljómar afar vel :)
Sendu inn athugasemd