Starfsmannaskortur í einkaskólum

Á dögunum barst til fræðsluráðs Hafnarfjarðar bréf frá formanni stjórnar sjálfstæðra skóla á Íslandi, fyrir hönd stjórnarinnar. Formaðurinn er Margrét Pála Ólafsdóttir.

Erindið fannst mér með nokkrum ólíkindum, en það snerist í megindráttum um ef fjárframlög hækka til sameiginlegu skólanna, skólanna okkar allra, þá skuli þau einnig hækka með sambærilegum hætti til einkaskólanna. Þannig ætti það alltaf að vera.

Tillaga meirihlutans, sem studd var af Sjálfstæðisflokki fól í sér ríflega einar milljón króna framlags á mánuði til leikskóla Hjallastefnunnar í Hafnarfirði. Ég sat hjá og bókaði eins og sjá má við fimmta lið: http://www.hafnarfjordur.is/hafnarfjordur/fundargerd_nanar/?ec_item_9_id=1af81767-70bf-47c2-a470-be7c8d67a992.

Það er löngu tímabært að hlúa frekar að samfélagsskólunum, sem við eigum öll, enda eru verkefnin ærin þar. fimmtán milljónir á ársgrundvelli má nýta í ýmis önnur verkefni.

Þess má geta að þau börn sem ég þekki á Hjalla eru hress, glöð og kát, a.m.k. hafa dætur mínar haft það gott þar, önnur er reyndar nú komin í skóla.

p.s. Nokkuð langt síðan ég skráði færslu hér seinast. Hef annars skipt um vinnu, starfa nú í UT sviði eins bankanna hérna heima.