Fundur í Hafnarfirði um samgöngumál - biðraðirnar löngu
Á sunnudaginn kemur klukkan 14:00 verður fundur í Fjörukránni í Hafnarfirði um samgöngumál á suðvesturhorninu. Við ætlum fyrst og fremst að ræða um samgöngumál höfuðborgarsvæðisins eins og Hafnfirðingar þekkja það, en auðvitað er höfuðborgarsvæðið farið að teygja sig austur á Selfoss, vestur á Skaga og Borgarnes og suður til Keflavíkur.
Árni Þór Sigurðsson verður framsögumaður, en hann hefur starfað að samgöngumálum og skipulagsmálum í mörg ár.
Það verður spennandi að heyra umræðurnar á fundinum um biðraðirnar, léttlestir, eldsneytið, umhverfið, strætó og allt þetta sem tilheyrir borgarverundinni.
Fjörukráin klukkan 14:00 - á sunnudag.
