Framhald

Mánudagar, fyrsti venjulegi á árinu. Vinna og fundur VG í Habbnó. Vinnan var fín. Lofaði að gera fullt af hlutum fyrir miðvikudaginn. Klára það þá bara.

Tómas hringdi og ég hjálpaði honum með enduruppsetningu á Dell 5100 vélinni sem hann er með. Massavél sem er trúlega endingarbesta vél sem Dell hefur puðrað frá sér.

Fésbúkk vinurinn í dag er þessi:
Býr núna í Danmörku ásamt sínum ektafelli. Er mikil vinkona mágs míns, en mér skilst einmitt að mægðir rofni ekki þrátt fyrir sambandsslit, hehe.

Hún og ég eigum 33 sameiginlega vini - en hittumst ekki reglulega. Hún skrifar reglulega um bækur og eiginlega líka um það sem þeim tengist. Hún er fyrirmyndar.

Utan dagbókar

Það er skrýtið að Ingibjörg Sólrún lét í veðri vaka að um e-r ráðherrahrókeringar yrðu. Sögusagnir flugu um að Þorgerður yrði utanríkisráðherra. Það finnst mér ósennilegt.

1. Vill ekki ISG vera með samningana um ICE-SAVE undir sinni stjórn eins og nú er? Þá er hægt að gá hvort ekki megi gera það og ESB að sama málinu.

2. Þær eru ekki með sömu afstöðu til árásarinnar á Gaza ströndina.

Annars skil ég ekki (frekar en oft áður) af hverju e-r er í ríkisstjórn, en segir líka að fjölmargar ástæður hafi verið til þess að slíta stjórnarsamstarfinu.

Borgarferð til Reykjavíkur

3. jan 09
Stemmingsdagur. Byrjaði á bíói með stelpunum - fór á Bolta í þrívídd. Það var fínt. Síðan skveruðust þær í pössun á meðan við hjónin fórum inn til Reykjavíkur í sollinn. Ljómandi fínt, fórum fyrst aðeins í sundlaugina í Laugardal og tékkuðum síðan inn á hótel 1919. Þar fengum við fínasta herbergi með útsýni yfir pylsuvagninn. Þetta var 35 fermetrar í það heila - risastórt bað og svona.

Ha bruðl, nei sko það þarf að nýta flugpunktana sem safnað var f.kr. Fórum líka út að borða og þetta var bara ljómandi.

4. jan 09
Tékkað út af hótelinu, ekki mikill morgunmatur og heilsan í samræmi við afrek gærkveldsins. Það er greinilegt að úthaldið til skemmtana minnkar með árunum. Í dag verður það bara hamborgari, lítið um það að segja.

Eigum við að prófa að logga árið?

Best að byrja:
1.1.2009
Í gær var frameftirsofið. Kláraði bókina sem ég man aldrei hvað heitir, - byrjar alltaf að heita dúkkusmiðurinn hjá mér, en heitir víst Skaparinn e. Guðrúnu Evu Mínervudóttur. Bókin er skemmtileg, bókin í fyrra var skemmtilegri en þessi var betri.

Ég veit ekki enn hvað ég les næst.

Nýársmaturinn var bara svona ditturinn og datturinn. Það er ekki hægt að borða veislumat á hverjum degi.

2.1.2009
Fór í vinnunna, vinn í tölvudeild lítils íslensks banka. Hélt áfram að fara yfir kerfisbókhaldið hjá okkur, eða listann yfir þau kerfi sem við þjónustum. Fann kerfi sem hafði sem lágmarkskröfu IE5, því það nýtir DHTML. Fyndið finnst þeim nördum sem hingað rekast.

Í hádeginu var skroppið með Dóru í einn rúnt og sameiginlegur hádegismatur. Það var auðvaldsmáltíð hjá McD. Ostborgari og Miðlungssjeik. 500 kall á kjapt, ágætt verð.

Aftur í vinnunna.

Facebook vinurinn sem lýst er í dag er valinn af handahófi. Valið fer þannig fram að ég fer á mína síðu og vel einn af þeim sem birtast á henni.

Að þessu sinni er það nokkur sem bjó ekki langt frá mér, en ég held sé nú kominn til fyrirheitna landsins - hins nýja 101, sem er TADAAAA - 107. Viðkomandi er snilldarskáld en hefur líka magnaða útvarpsframkomu. Útvarpsþátturinn sem er í umsjón þessarar ágætu persónu og nokkurra annarra er með betra útvarpsefni á Íslandi.
. . .og gettu nú.